Sælt verið fólkið, þeir sem skoða þessa síðu allavegana enþá

Haldið ekki að ég hafi bara drifið mig í vísó seinasta föstudag
allt stelpunum að þakka sem tróðu nafninu mínu á blað, komust 70
með og ég var akkurat númer 70

Mættum niðrí Öskju um 4 og svo var brunað með rútu niðrá bryggju

sigldum með eldingu 1 (minnir mig) í dágóðan tíma sötruðum bjór og
tjöttuðum. Fórum í "drykkjuleik" búa til sögu með einu orði, urðum
að stoppa vegna öldugangs, það voru ekki allir að fíla þetta

Eftir sjóferðina fóru flest allir á Pravda nema við 3 skvísurnar
fórum í eitthvað tölvu,lúða,kallaparty

fittuðum engan vegin
þarna inn

en ég fór bara snemma heim. Svo var nátturlega
aðalkvöldið hjá okkur FÁ-Gellz úff hvað var etið mikið...
nammi,namm mig langar í meira svona

Þetta var æði takk enn og
aftur stúlkur

Daginn eftir var bara rólegheit dauðans ekki gert
NEITT!!! sem er mjög ljúft... Svo fórum við til tengdó að borða,
veitti ekki af þar sem maður er nú ekkert alltof duglegur í
eldamennskunni

ætti að fara glugga í eldamennskubækur

Þessi vika búin að vera fín, nátturlega skóli og verkefni og
svoleiðis skemmtileg heit var í skólanum til 10 á þriðjudaginn

hef nú aldrei verið svona lengi í skólanum.
Annars er ég komin í helgarfrí, ef maður væri ekki alltaf einn

sumir svoddan vinnugrísir og eru bara aldrei heima, sí vinnandi og
ég bara ein heima

Annars planið fyrir helgina er að fara að djamma með núverendi og
verðandi ferðamálafræðingum/nemum allgjör snilld allir safnast
saman á einn stað og það verður drukkið og kjaftað! 1árs nemar ætla
að fjölmenna að sjálfsögðu

kostar 1500 kall inn og frír bjór og
snittur eins og þú getur í þig látið


Laugardagskvöldið verður svo Icefittness

allir að koma í
höllina klukkan 20:00 og horfa á kroppana keppa... búin að bíða
spennt eftir þessu.
Allavegana alveg nóg að gera!!! Ætla líta aðeins í bók svo ég eigi
nú gott frí um helgina Kollan kveðjur